Pantanir yfir 15.000 kr fá ókeypis heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu

Vísindalega sýnt fram á að

Auka frammistöðu
um allt að 3%

Bicarb spornar gegn myndun mjólkursýru í blóði — náttúrulegt, rannsóknasett og notað af íþróttafólki um allan heim.

Allt að3%bæting
Persónuleg met1000+slegin
Notuð til að setja4+Heimsmet
VerðFrá 1.399 krÁ skammti

Hvað er Bicarb?

Böfferlausn sem verndar frammistöðuna þína

Þegar líkaminn er í mikilli áreynslu myndast mjólkursýra hraðar en líkaminn vinnur úr henni. pH gildi blóðsins lækkar — og frammistöðan dalar.

BICARRB myndar böfferlausn í blóðinu sem hvarfast við sýruna og heldur pH gildinu stöðugu.

3%Allt að 3% aukning í úthaldsframmistöðu skv. rannsóknum
1000+Persónuleg met slegin með bicarb
4+Heimsmet sett með vörum flycarb
FlycarbBreskur framleiðandi, vísindalega prófað

Vörulína

Veldu þína BICARRB

Notkun

Mikilvægt er að nota BICARRB á réttan hátt

Neyslan fer fram í fjórum skrefum og tímasetning skiptir máli.

Vörulína

Allar vörur

Allar BICARRB vörur eru framleiddar af Flycarb í Bretlandi og vísindalega prófaðar. 1.499 kr á skammti.

BICARRB

Hreint og óbragðbætt

BICARRB

Upprunalega og bragðlausa BICARRB blanda. Fullkomið fyrir þá sem vilja fá skammtinn á einfaldan og hreinan hátt.

  • Sodíum bíkarbonat
  • Orkublanda
  • Ekkert sykur
frá 1.399 kr Velja stærð →
Mangó BICARRB

Mangóbragð, án koffíns

Mangó BICARRB

Uppáhaldsbragðið — bicarb á þægilegan og bragðgóðan hátt. Ekkert koffín, fullkomið fyrir síðdegisæfingar.

  • Sodium bicarbonate
  • Mangóbragð
  • Vinsælast
frá 1.399 kr stk Velja stærð →
CAFCARB

Með koffíni

CAFCARB

BICARRB og koffín í einni lausn. Tvöföld frammistöðuaukning — bicarb verndar gegn sýru á meðan koffínið örvar miðtaugakerfið.

  • Sodium bicarbonate
  • Koffín 120mg
  • Orkublanda
Uppselt
Mintu BICARRB

Mintubragð, án koffíns

Mintu BICARRB

Hressandi mintubragð sem skilur engan eftirbragð eftir. Ekkert koffín, tilvalið fyrir kvöldæfingar.

  • Sodium bicarbonate
  • Náttúrulegt mintubragð
  • Orkublanda
frá 1.399 kr stk Velja stærð →
Ferskju CAFCARB

Ferskjubragð + koffín

Ferskju CAFCARB

Yndislegt ferskjubragð með koffíni og bicarb. Sama krafturinn og CAFCARB en í þægilegu bragðsamsetningu.

  • Sodium bicarbonate
  • Koffín 120mg
  • Ferskjubragð
frá 1.399 kr stk Velja stærð →

Vísindirnar

Hvað gerir BICARRB

Hvað gerist í vöðvunum við mikla áreynslu

Þegar þú keyrir á háum ákefðum brennir líkaminn kolvetni hraðar en súrefni berst til vöðvanna. Við þessa loftfirrtu orkuframleiðslu myndast mjólkursýra, sem klofnar samstundis í laktat og vetnisjónir (H⁺).

Það er lykilatriði að skilja: laktatið sjálft er ekki vandamálið — það er í raun endurnýtt sem orkugjafi. Það eru vetnisjónirnar sem safnast upp, lækka sýrustig (pH) inni í vöðvafrumunum og trufla samdrátt þeirra. Þessi súrnun er ein af ástæðum þess að vöðvarnir „brenna" og krafturinn dvínar undir lok erfiðs átaks.

30 s–12 mín

Rannsóknir sýna skýrastan ávinning af bíkarbónati í átökum sem endast frá um það bil 30 sekúndum upp í 12 mínútur á hárri ákefð — þar sem uppsöfnun vetnisjóna er mest.

Hvernig virkar bíkarbónat?

Bíkarbónat (natríumbíkarbónat, efnaformúla NaHCO₃) er náttúrulegt búfferefni. Þegar það er tekið inn hækkar það styrk bíkarbónats (HCO₃⁻) í blóðvökvanum og kemur líkamanum í vægt alkalískt ástand — það sem kallast efnaskiptaalkalósa.

Frumuhimna vöðvans hleypir bíkarbónatinu ekki inn, svo áhrifin verða utan frumunnar: hærra pH í blóðinu myndar brattari stigul milli vöðvafrumu og blóðs. Það hjálpar til við að draga vetnisjónir og laktat hraðar út úr vinnandi vöðvum — að öllum líkindum um sérstakar flutningsprótín (MCT1 og MCT4). Vöðvinn helst nær sínu kjörsýrustigi lengur og getur haldið krafti út lengra.

Rétt er að taka fram að nákvæmur verkunarmáti er ekki fullkomlega staðfestur, og hluti ávinningsins kann að vera lyfleysuáhrif. En aukin búffergeta utan frumu er sú skýring sem víðtækust sátt ríkir um meðal vísindamanna.

Hvað segja rannsóknir um árangur?

Alþjóðasamtök íþróttanæringar (ISSN) gáfu út formlega afstöðu árið 2021 þar sem niðurstaðan er skýr: bíkarbónat bætir frammistöðu í vöðvaúthaldi, ýmsum bardagaíþróttum (hnefaleikum, júdó, karate, taekwondo, glímu) og í háákefðar hjólreiðum, hlaupum, sundi og róðri. Áhrifin koma fram bæði hjá körlum og konum, og í stökum sem endurteknum átökum.

Yfirlitsrannsóknir (umbrella review) á fjölda safngreininga staðfesta ávinning í hámarks loftfirrtu afli, loftfirrtri getu, 2000 m róðri og háákefðar spretthlaupum. Áhrifin eru þó einstaklingsbundin — sumir svara sterkt, aðrir lítið — svo það borgar sig að prófa sig áfram.

Skammtur, tímasetning og aukaverkanir

Sá skammtur sem mest er rannsakaður er 0,3 g á hvert kg líkamsþyngdar, tekinn 60–180 mínútum fyrir átak. Fyrir 70 kg íþróttamann samsvarar það um 21 g. Hærri skammtar (0,4–0,5 g/kg) gefa ekki meiri ávinning en auka líkur á aukaverkunum.

Algengasta aukaverkunin er magaóþægindi — uppþemba, ógleði eða niðurgangur — vegna þess hve hratt natríum og bíkarbónat frásogast. Til að draga úr því er ráðlegt að byrja varlega (0,2 g/kg), taka skammtinn með kolvetnaríkri máltíð, dreifa honum í smærri skammta, eða nota lengri fyrirvara (nær 180 mín). Þess vegna er BICARRB hannað til að lágmarka meltingaróþægindi.

Mikilvægt: Prófaðu bíkarbónat alltaf á æfingum áður en þú notar það í keppni. Einstaklingar með háan blóðþrýsting eða nýrnavandamál ættu að fara varlega vegna hás natríuminnihalds — og ræða við lækni ef vafi leikur á.

Saga bíkarbónats í íþróttum

Rannsóknir á bíkarbónati sem frammistöðubæti ná allt aftur til fjórða áratugar 20. aldar, og fyrstu skýru niðurstöðurnar birtust á áttunda áratugnum. Það er í dag eitt af fáum fæðubótarefnum sem Alþjóðaólympíunefndin (IOC) viðurkennir með gögnum að baki.

Lengi vel notaði fólk hefðbundinn matarsóda beint — en oft í svo stórum skömmtum að það fór illa í maga. Nýrri lausnir leggja áherslu á að hlífa meltingarkerfinu. Flycarb var stofnað í Bretlandi með það að markmiði að bjóða vísindalega prófað bíkarbónat á viðráðanlegu verði, og Bicarb.is er opinber umboðsaðili þess á Íslandi.

Heimildir

Efnið hér er til fróðleiks og kemur ekki í stað ráðgjafar frá heilbrigðisstarfsfólki. Fæðubótarefni henta ekki öllum.

Leiðbeiningar

Hvernig á að nota Bicarb

Blöndun

Fjögur skref til fullkominnar blöndunar

Tímasetning og rétt blöndun skiptir máli. Fylgdu þessum skrefum vandlega.

01

Orkublanda í ílát

Helltu orkublöndunni (Energy mix) í Flycarb skálina eða annað hæfilegt ílát.

02

Bæta við vatni

Bættu 60 ml af vatni við og hrærðu vel þannig að allt blandist saman.

03

Blanda BICARRB-inu inn

Bættu öllu BICARRB mix-inu saman við og hrærðu aftur vel þar til fullblandað.

04

Gleypa — ekki tyggja

Borðaðu BICARRB-ið. Mikilvægt er að tyggja ekki, bara gleypa. Þetta er lykilatriðið.

Hvenær á að taka BICARRB?

Notkun bicarbs er mjög persónubundin. Mikilvægt er að prófa á æfingum — ekki í keppni í fyrsta skipti.

Ráðlegging: Notaðu reiknivélina okkar til að fá nákvæma tímalínu út frá þínum þyngd og keppnistíma.

Flycarb reiknivél

Persónulega tímalínan þín

Að taka inn bíkarbónat á réttum tíma er lykillinn að því að bæta frammistöðu um allt að 3%. Notaðu þessa tímalínu til að hámarka böfferáhrif.

Þessi tímalína er leiðbeinandi. Mikilvægt er að æfa tímasetningu á æfingum áður en BICARRB er notað í keppni.

Skammtareiknivél

Hversu mikið BICARRB á ég að taka?

Rétt stærð skammts fer eftir líkamsþyngd og reynslu. Notaðu reiknivélina til að finna þinn skammt — og mundu að það er ekki alltaf betra að taka meira.

Ráðlögð stærð skammts

16 g BICARRB

Þessi ráðlegging er byggð á nýjustu rannsóknum (Flycarb). Mundu að það er ekki alltaf betra að taka meira bicarb.